Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen) (andsvar):
Herra forseti. Það er kannski ekki mjög miklu að svara miðað við það sem hv. þm. sagði en þar sem hann talaði um frestun á verkfallinu þá verður verkfalli ekki frestað nema báðir deiluaðilar komi sér saman um það. Hins vegar þarf að aflýsa verkfallinu ef annar deiluaðili ætlar að gera það einhliða. Það er nauðsynlegt að við notum rétt hugtök í umræðunni til þess að það skiljist sem við erum að segja. Ef hv. þm. hafa verið að tala um frestun þegar ég hef verið að tala um að aflýsa hafa þeir þar af leiðandi ekki skilið það sem ég hef sagt vegna þess að þeir eru ekki klárir á þeim hugtökum sem um er að ræða.
Það sem ég var að segja hér áðan í fyrra svari mínu og er aftur svar mitt er að ef sjómenn aflýsa verkfallinu þá þarf auðvitað ekki að setja nein lög á verkfallið. Þá er verkfallinu lokið og flotinn getur farið á sjó aftur.