Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef komið auga á tilvitnaða grein í nefndarniðurstöðunni sem hv. þm. var að segja frá. En það er ekki hægt að líkja þessum málum alveg saman. Ég sagði áðan líka að að sjálfsögðu, eðli málsins samkvæmt, væri gerðardómur óháður. Gerðardómurinn hefur frelsi. Við erum ekki að ákveða hvaða kaup sjómenn eiga að hafa.