Forseti (Halldór Blöndal):
Borist hefur svohljóðandi bréf:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að óska þess að 1. varaþm. Framsfl. í Reykn., Páll Magnússon framkvæmdastjóri, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.
Þetta er yður hér með tilkynnt, herra forseti.
Siv Friðleifsdóttir, 7. þm. Reykn.``
Páll Magnússon hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa á ný.