Frsm. iðnn. (Hjálmar Árnason):
Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. iðnn. um till. til þál. um tilraunir með brennsluhvata, á þskj. 1205.
Tillagan miðar að því að fram fari tilraunir og úttekt á umhverfis- og brennsluáhrifum brennsluhvata, en rannsóknir benda til að brennsluhvatar kunni að draga jafnt úr olíunotkun sem útblæstri lofttegunda sem valda gróðurhúsaáhrifum.
Nefndin telur afar brýnt að þetta mál verði rannsakað frekar og eftir að hafa skoðað fjölmargar umsagnir sem bárust nefndinni varð nefndin einhuga um að gera þá tillögu að þessi þáltill. verði samþykkt.