Kjaramál fiskimanna og fleira

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 15:47:46 (7914)

2001-05-16 15:47:46# 126. lþ. 125.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, HBl (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.

[15:47]

Halldór Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Það má nú kannski hugsa sér að þeir sem eru hér uppi á svölum klappi fyrir því ef einhver missir niður um sig brækurnar.

En það vil ég segja við hv. 3. þm. Norðurl. e. að hin síðari ræða hans kom ekki á óvart. Því miður hefur hv. þm. vanið sig við talshátt eins og þennan sem spillir fyrir annars góðum málflutningi sem hann hefur oft uppi.