Kjaramál fiskimanna og fleira

Miðvikudaginn 16. maí 2001, kl. 17:33:08 (7924)

2001-05-16 17:33:08# 126. lþ. 125.1 fundur 737. mál: #A kjaramál fiskimanna og fleira# (breyting ýmissa laga) frv. 34/2001, JÁ (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 125. fundur, 126. lþ.

[17:33]

Jóhann Ársælsson (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Mér þykir ekki gott að menn skuli ekki hafa haft ráðrúm til að komast hingað til atkvæðagreiðslunnar. Það er búið að hringja út til þingmanna um að mæta í atkvæðagreiðslu á síðustu mínútum. Ég hef fengið upphringingar þar sem menn hafa bókstaflega verið að sleppa tólinu og ná ekki hér í hús. Ég kvarta undan því og vek athygli á því að ýmsa þingmenn vantar í salinn þess vegna.