Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Fimmtudaginn 17. maí 2001, kl. 18:36:06 (8017)

2001-05-17 18:36:06# 126. lþ. 127.1 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv. 75/2001, 708. mál: #A fjarskipti# (skilyrði rekstrarleyfis) frv. 72/2001, RG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 127. fundur, 126. lþ.

[18:36]

Rannveig Guðmundsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Við þetta þarf litlu að bæta. Við höfum farið yfir það hvað skilur á milli afstöðu þessara flokka. En ég vil taka sérstaklega fram að á sama tíma og ég árétta afstöðu Samfylkingarinnar þá hefðum við aldrei, hefðum við haft ráðin í okkar hendi, staðið að málum eins og þessi ríkisstjórn gerir, hvorki varðandi samkeppnisþáttinn né náttúrlega að nokkru leyti ljáð öðru máls.