Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Við erum að færa fjármuni í önnur verkefni sem gefa arð. Hér er tíundað í áliti meiri hlutans að ríkið ætli í þessu tilviki að halda því einu eftir hjá sér sem engan arð gefur, en selja frá sér það sem gefur arðinn.
Pósthúsin og lokun þeirra í Skagafirði er aukaatriði í þessu máli, segir hæstv. samgrh. Mér finnst þetta ekki aukaatriði. Mér finnst undirskrift 200--300 einstaklinga og beiðni sveitarstjórnar sem er hunsuð ekki vera aukaatriði. En ástæðan fyrir því að það mál var vakið í umræðunni eru afskipti eftirlitsaðilans, Póst- og fjarskiptastofnunar, þeirrar stofnunar sem á að hafa eftirlit með hinum einkavædda síma. Hún svarar sveitarstjórninni, hún svarar stjórnmálaflokkum á þann veg að menn skuli í rólegheitum bíða skýrslu sem sé væntanleg eftir hálft ár eða svo. Ég held að septembermánuður hafi verið nefndur.
Varðandi þær fullyrðingar sem settar eru fram í greinargerð einkavæðingarnefndar, punktarnir sjö sem ég fór rækilega yfir, þá afgreiðir hæstv. samgrh. þá á þann veg að það þýði ekkert að ræða þá við mig, við höfum bara eina skoðun á þeim málum. Ég var nú að gera tilraun til að fjalla um hvern þessara þátta fyrir sig. Það væri æskilegt og fróðlegt að heyra samsvarandi vangaveltur hæstv. samgrh. um þessi efni.
Ég auglýsi eftir röksemdum þegar menn ætla að ráðast í jafnafdrifaríka gjörð og hér er á ferðinni.