Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):
Herra forseti. Já, ég hef trú á því. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að erlendis hefur sýnt sig að þau fyrirtæki sem hafa fjárfest í ríkissímafyrirtækjum, þar sem alþekktar eru klausur um jaðarbyggðir og landsbyggð, keppast við að bjóða í slík fyrirtæki því þau telja þetta vera markaðstækifæri.
Ég vil einnig benda á það sem ég benti á áðan, að ef við teljum það tryggja hagsmuni landsbyggðarinnar að ríkið reki grunnnetið, og til verði stórt ríkisfyrirtæki, 400--450 manna ríkisfyrirtæki sem tryggi að grunnnetið verði í lagi, þá hlýtur hið sama að gilda t.d. um Íslandspóst sem er í 100% eigu ríkisins. Þá getum við ályktað sem svo að þar hljóti að vera um að ræða pottþétt grunnnet í póstþjónustu.