Skráning og mat fasteigna

Föstudaginn 18. maí 2001, kl. 16:40:08 (8143)

2001-05-18 16:40:08# 126. lþ. 128.17 fundur 688. mál: #A skráning og mat fasteigna# (útgáfa matsskrár o.fl.) frv. 61/2001, félmrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 128. fundur, 126. lþ.

[16:40]

Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er reglugerðarákvæði. Það þarf ekki lagabreytingu til að ganga frá þessu atriði. Það er hægt að gera með reglugerð.

Ég hef áhuga á að breyta fleiri atriðum með reglugerð. Hér er á dagskránni frv. til laga um breytingu á lögum um húsnæðismál. Þar er tekið á málefnum sem líka þarf að fjalla um í reglugerð þannig að von er á breytingu á reglugerð frá mér í þessum efnum innan skamms. Ég tel víst að frv. nái afgreiðslu á þessu þingi.