Þróunarsjóður sjávarútvegsins

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 10:27:58 (8277)

2001-05-19 10:27:58# 126. lþ. 129.48 fundur 735. mál: #A Þróunarsjóður sjávarútvegsins# (gjald á aflaheimildir) frv., JÁ
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[10:27]

Jóhann Ársælsson:

Hæstv. forseti. Ég ætlaði fyrst og fremst að bera fram fyrirspurn til hæstv. sjútvrh. Er meiningin með því að mæla fyrir þessu frv. að það verði afgreitt fyrir þinglok eða hver er meiningin með því að mæla fyrir þessu frv. á laugardegi þegar komið er að þinglokum? Það væri betra alla vega fyrir þá sem eru í sjútvn. að vita hvort ætlast er til þess að málið komist áfram.