Stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 13:41:20 (8306)

2001-05-19 13:41:20# 126. lþ. 129.5 fundur 480. mál: #A stofnun hlutafélags um Orkubú Vestfjarða# frv. 40/2001, SvanJ (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[13:41]

Svanfríður Jónasdóttir (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Fulltrúar Samfylkingarinnar í iðnn. afgreiddu þetta mál með fyrirvara. Við höfum gert grein fyrir þeim fyrirvara í umræðunni. Við munum greiða 1. gr. þessa frv. atkvæði okkar en að öðru leyti munum við sitja hjá við afgreiðslu málsins.