Ögmundur Jónasson (um fundarstjórn):
Herra forseti. Ég held að sé kominn tími til að reyna að fá einhvern botn í hvað hér er að gerast og hvað hér eigi að gerast í dag. Þingmenn fengu í morgun dagskrá í 53 liðum. Síðan fylgjast menn með því af spenningi hvar forseta ber niður, í 1. lið eða 49. eða 47. Þegar hlé var gert á fundinum fyrir matinn var verið að ræða sölu á Landssíma Íslands og einn ræðumaður var þar í miðri ræðu sinni, ef ég veit rétt. Þeirri umræðu er ekki haldið áfram. Ég hef ekki trú á því að menn séu hættir við að selja Landssímann. Betur ef svo væri. En ég held, herra forseti, að við þurfum að fá skýrar línur hér í þinghaldið. Stóð ekki til að halda áfram umræðu um Símann, um símamálið og sýna þeim þingmanni sem var í miðri ræðu sinni þá kurteisi að ræða alla vega við hann og gera honum grein fyrir þessu, og þá öðrum þingmönnum, gera þeim grein fyrir því að til stæði að ræða önnur mál? Mér finnst þetta ekki ganga lengur og fer fram á það vinsamlegast við hæstv. forseta að okkur verði gerð grein fyrir framvindu málsins í dag. Það er reyndar kominn tími til að ræða þinghaldið á næstu dögum, hvað menn hafa hugsað sér í þeim efnum. Ég geri það að tillögu minni að einhvern tímann fljótlega --- ég er ekki að gera kröfu um það núna --- en einhvern tímann fljótlega verði gert hlé á þinghaldinu og við setjumst saman, formenn þingflokka, með stjórn þingsins og ræðum þessi mál.