Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson) (andsvar):
Herra forseti. Það er nú alveg prýðilega gott að semja við hæstv. fjmrh. Hann er afskaplega sanngjarn maður og ef nokkuð, þá er hann enn sanngjarnari en fyrirrennari hans, hæstv. fyrrv. fjmrh., Friðrik Sophusson.
Ég á von á því að við náum góðu samkomulagi og farsælli lausn fyrir leigjendur og að við komum til með að geta þróað traustan og ábyggilegan leigumarkað fyrir þá sem ekki vilja eða geta fest fé í eigin húsnæði og líka fyrir venjulegt fólk sem kann að kjósa að búa í leiguhúsnæði heldur en að kaupa. Ég ætla hins vegar ekki að styðja brtt. sem hv. þm. vitnaði til.