Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 23:17:11 (8468)

2001-05-19 23:17:11# 126. lþ. 129.6 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv. 75/2001, LB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[23:17]

Lúðvík Bergvinsson:

Virðulegi forseti. Fróðlegt var að hlýða á umræðu um skýrslu Samkeppnisstofnunar í dag þar sem menn fóru hamförum yfir því að tiltekið fyrirtæki hefði 61% markaðshlutdeild. Hér er ætlunin að selja fyrirtæki sem er með allt upp undir 90% markaðshlutdeild og mönnum svelgist ekki einu sinni á.

Virðulegi forseti. Við viljum ekki standa að því að einkavæða einokun og því sitjum við hjá.