Sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.

Laugardaginn 19. maí 2001, kl. 23:17:47 (8469)

2001-05-19 23:17:47# 126. lþ. 129.6 fundur 707. mál: #A sala ríkissjóðs á hlutafé í Landssíma Íslands hf.# frv. 75/2001, PHB (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 129. fundur, 126. lþ.

[23:17]

Pétur H. Blöndal:

Herra forseti. Við sem höfum þá skoðun að einkarekstur sé þjóðhagslega heppilegri en ríkisrekstur hljótum að gleðjast yfir þessu skrefi, mestu einkavæðingu til þessa. Ég segi já.