Tilkynning um kosningu embættismanna alþjóðanefnda

Fimmtudaginn 05. október 2000, kl. 10:32:14 (70)

2000-10-05 10:32:14# 126. lþ. 4.92 fundur 25#B tilkynning um kosningu embættismanna alþjóðanefnda#, Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 126. lþ.

[10:32]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Forseta hafa borist tilkynningar um kosningu formanns og varaformanns alþjóðanefnda.

Í Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Einar K. Guðfinnsson formaður og Jóhanna Sigurðardóttir varaformaður.

Í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Lára Margrét Ragnarsdóttir formaður og Ólafur Örn Haraldsson varaformaður.

Í Íslandsdeild NATO-þingsins: Tómas Ingi Olrich formaður og Guðmundur Árni Stefánsson varaformaður.

Í Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Ísólfur Gylfi Pálmason formaður og Sigríður Jóhannesdóttir varaformaður.

Í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Árni Johnsen formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.

Í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Vilhjálmur Egilsson formaður og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.

Í Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins: Kristján Pálsson formaður og Katrín Fjeldsted varaformaður.

Í Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Guðjón Guðmundsson formaður og Jónína Bjartmarz varaformaður.