Fjárlög 2001

Fimmtudaginn 05. október 2000, kl. 10:33:32 (71)

2000-10-05 10:33:32# 126. lþ. 4.2 fundur 1. mál: #A fjárlög 2001# frv., Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 126. lþ.

[10:33]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Áður en umræðan hefst vill forseti geta þess að samkomulag er á milli þingflokkanna um ræðutíma í umræðunni og hann er þessi: Ráðherra hefur 35 mínútur til framsögu, 15 mínútur í annað sinn og 10 mínútur í þriðja sinn. Talsmenn þingflokka hafa 20 mínútur í fyrsta sinn en 10 mínútur í annað og þriðja sinn. Aðrir þingmenn og ráðherrar hafa 10 mínútur í fyrra og síðara sinn. Andsvör verða leyfð frá upphafi umræðunnar, þó þannig að í fyrstu umferð verður aðeins talsmönnum þingflokkanna og fjmrh. heimilt að veita andsvör.