Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde) (andsvar):
Herra forseti. Eins og vænta mátti kom margt athyglisvert fram í ræðu hv. þm. Ég vil geta þess að atvinnuleysið samkvæmt nýjustu mælingu er ekki 2% heldur 1,1% miðað við ágústmánuð og líka miðað við júlímánuð.
En ég ætla að koma að því sem hann sagði í lokin varðandi barnabæturnar og fyrirspurn hans um sendiráðið í Tókíó. Barnabætur hafa skerst í gegnum árin vegna þess að tekjur fólks hafa aukist. Hátekjufólk eins og ég sjálfur og forveri minn sem eigum börn á barnabótaaldri höfum misst barnabæturnar. Ég tel það ekki eftir mér og ég er alveg viss um það að flestir í þeirri stöðu sem við erum í hér inni, eins og hv. þm. Össur Skarphéðinsson er nú alltaf að vitna til, telja það ekki eftir sér að barnabætur sem hefðu runnið til þeirra renna nú til fólks sem hefur meiri þörf fyrir þær vegna þess að það hefur lægri tekjur. En það er ætlunin að auka barnabæturnar um 600 millj. kr. frá því sem er áætlunin á þessu ári og um 1.500 milljónir í heild eða um þriðjung á þremur árum, eins og fram kom í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga á síðasta vetri.
Að því er varðar sendiráðið í Tókíó þá er þar um að ræða fjárhæð sem mun koma fram þegar fjáraukalagafrv. verður lagt fram vegna þess að það er ætlunin að áætla fyrir því í því frv. Þar er einfaldlega um að ræða mat á því hvað er hagstæðast að gera við núverandi aðstæður og miðað við þann markað sem nú er fyrir hendi austur í Tókíó. Og það er mat færustu manna sem hafa kynnt sér það að skynsamlegra sé að kaupa þar húsnæði heldur en að leigja.
Annars hygg ég að hv. þm. Ögmundur Jónasson ætti kannski að ræða þetta mál nokkuð við sinn 1. varaþm. sem ár eftir ár hér á Alþingi flutti um það þáltill. að opna bæri sendiráð í Japan. Og hver var það? Hv. varaþm. Hjörleifur Guttormsson.