Ögmundur Jónasson (andsvar):
Herra forseti. Ég gat þess að ég væri því hlynntur að efla utanríkisþjónustuna og þess vegna kaupa sendiráð ef því væri að skipta. En 700 millj. kr., hvers konar ruglfjárfesting er eiginlega hér á ferðinni? Og ætlar Alþingi að skrifa upp á þessa óráðsíu?
Ríkisstjórnin er að gorta af því að hún ætli að setja 600 millj. kr. í barnabætur á komandi ári til viðbótar því sem áður var áætlað. Og hæstv. ráðherra segir að á næstu þremur árum verði þetta framlag aukið alls um 1.500 milljónir. Það er tvöföld sendiráðsbygging, það er nú ekki meira. En staðreyndin er sú að samkvæmt þeim upplýsingum sem ég fékk frá hæstv. fjmrh. á sl. vori voru barnabætur einum milljarði hærri í krónum talið árið 1991 en á árinu 1999. Og samkvæmt upplýsingum frá sama aðila er munurinn þarna samkvæmt raungildi krónunnar 2 milljarðar kr. Og ríkisstjórnin ætlar á næstu þremur árum ekki einu sinni að koma til baka með þær skerðingar sem gerðar hafa verið á barnabótunum á undangengnum áratug.