Löggjöf og eftirlit með klámi, vændi o.fl.

Mánudaginn 09. október 2000, kl. 15:43:55 (214)

2000-10-09 15:43:55# 126. lþ. 5.5 fundur 51. mál: #A löggjöf og eftirlit með klámi, vændi o.fl.# beiðni um skýrslu frá dómsmrh., dómsmrh. (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 126. lþ.

[15:43]

Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):

Hæstv. forseti. Ég vil láta þess getið og upplýsa þingheim um það að sama mál kom fyrir á síðasta þingi og þá var beiðni um skýrslu samþykkt. Það hefur farið fram vinna í dómsmrn. í framhaldi af þeirri samþykkt og henni er að verða lokið þannig að þessi skýrsla kemur væntanlega fram fljótlega.