Dreifð eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum

Mánudaginn 09. október 2000, kl. 16:32:09 (228)

2000-10-09 16:32:09# 126. lþ. 5.9 fundur 8. mál: #A dreifð eignaraðild að viðskiptabönkum og öðrum lánastofnunum# (breyting ýmissa laga) frv., viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 5. fundur, 126. lþ.

[16:32]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Ég veit að hv. þm. skemmtir sér ákaflega vel í umræðunni. En ég átta mig ekki alveg á hvað hann á við þegar hann segir: ,,Þið farið ekkert fram með málið.`` Ég vona að hv. þm. geri sér grein fyrir því að þetta er mitt mál og það er spurning um hvenær ég fer fram með þetta mál en ekki einhverjir aðrir.