Flm. (Steingrímur J. Sigfússon) (andsvar):
Herra forseti. Ég held að tillögugreinin í þessum efnum sem og sá rökstuðningur allur sem fyrir henni er fluttur sé sæmilega skýr. Þar er hvergi minnst á einhliða uppsögn á núgildandi samningum okkar á sviði alþjóðamála eins og aðild okkar að EFTA eða EES-samningnum.
Hitt er hins vegar alveg skýrt að við höfum stefnu varðandi það í hvaða átt við viljum sjá slík samskipti þróast. Þá fara menn einfaldlega yfir það hvernig menn ná helst árangri í þeim efnum. Þetta er að sjálfsögðu einnig í samhengi við umræður um það að EES-samningurinn sé að veikjast og hann kunni að gufa upp, stofnanaþáttur hans að hverfa og annað í þeim dúr, á næstu árum eða í fyrirsjáanlegri framtíð. Þá skiptir miklu máli, herra forseti, að menn hafi einhverja hugmynd um það eftir hvaða meginlínum, í hvaða átt menn telja skynsamlegt að þróa þessi samskipti af okkar hálfu. Það mundu menn væntanlega ekki gera með því að byrja á því að segja öllu upp sem fyrir er heldur með því að fara í viðræður við þá aðila sem við erum í samskiptum við og fara yfir það hvernig aðstæður séu og hvernig menn geti séð þessa hluti breytast. Það held ég, herra forseti, að sé sú lína í þessum efnum sem við þurfum að móta okkur hvað framtíðina snertir.
Nú kann þetta að gleðj hv. þm. óskaplega og kannski kemur hann og segir að hér standi mikill umskiptingur, hafandi gagnrýnt EES-samninginn mikið á sínum tíma og það gerði ég svo sannarlega og var ekki einn um. En hann er engu að síður staðreynd og hann er engu að síður búinn að vera grundvöllur samskipta við Evrópusambandið um nokkurt árabil. Við höfum nauðug viljug orðið að laga okkur að þeim veruleika og þannig er staðan í dag. Það sem skiptir okkur meira máli, held ég, en að heyja orustur gærdagsins í þessum efnum er að átta okkur á því hvað er fram undan og hvernig við viljum standa málum. Þar höfum við klára stefnu, við viljum ekki stefna á aðild að Evrópusambandinu heldur þróa þessi samskipti í átt til einfaldari tvíhliða samskipta. Það teljum við henta hagsmunum okkar betur.