Utanríkisráðherra (Halldór Ásgrímsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hef lesið margt um Írak og ég vil byrja á að nefna það sem hv. þm. sagði í sambandi við olíu fyrir mat. Þetta voru upphaflega um 4 milljarðar á fyrsta ári. En áætlað er að það verði 20,4 milljarðar á þessu ári sem er náttúrlega gífurleg breyting að því er varðar vörur til mannúðarmála. En það verður að gerast þannig að Írakar --- eða Saddam réttara sagt því að það er ekkert hægt að tala um Íraka. Það er Saddam sem stjórnar þarna öllu með sínu ægivaldi og er aðalvandkvæðið.
Það er hins vegar staðreynd að í Norður-Írak þar sem Sameinuðu þjóðirnar fara með þessar mannúðaráætlanir, hefur dregið úr barnadauða um helming frá því sem hann var fyrir Flóabardaga. Hins vegar hefur barnadauði meira en tvöfaldast í suðurhluta Íraks og í Mið-Írak þar sem ríkisstjórn Íraks fer með þessi mál. Sameinuð þjóðirnar hafa hvatt mjög til þess að þarna færi inn nægilega mikið af hjálpargögnum og læknislyfjum, en það er því miður staðreynd að stjórnin hefur kosið að hlaða þessu upp í vöruhúsum og geyma þessi gögn í stað þess að koma þeim á framfæri til almennings í landinu.
Auðvitað er Saddam Hussein að notfæra sér þetta, notfæra sér ákveðna samúð í alþjóðasamfélaginu sér í hag, því miður. Það hljóta allir að sjá að þetta er ótíndur glæpamaður sem svífst einskis.