Almannatryggingar

Fimmtudaginn 12. október 2000, kl. 15:54:45 (491)

2000-10-12 15:54:45# 126. lþ. 9.7 fundur 26. mál: #A almannatryggingar# (tekjutenging bóta) frv., PHB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 9. fundur, 126. lþ.

[15:54]

Pétur H. Blöndal (andsvar):

Herra forseti. Hv. þm. tekur undir sívaxandi einstaklingshyggju í þjóðfélaginu þar sem fyrst og fremst er litið er á einstaklinginn en ekki á þær aðstæður sem hann býr við, t.d. sameiginlegan fjárhag með maka. Hv. þm. tekur þannig undir þessa einstaklingshyggju og ég get ekki annað en glaðst yfir því.