Flm. (Guðjón A. Kristjánsson) (andsvar):
Herra forseti. Ég hygg að það sem hv. þm. Jóhann Ársælsson vék að hér síðast sé einmitt það sem menn hefðu kannski átt að skoða betur þegar verið var að ákveða það að fækka þessum dögum og skera þá niður. Ég held að það geti einmitt virkað sóknarhvetjandi. Ég er nærri viss um að meðan dagarnir voru 80 hjá þessum bátaflota hafi enginn klárað þessa daga eða a.m.k. mjög fáir bátar. Jafnvel þegar þeir voru komnir niður í 40 þá hygg ég að mjög fáir bátar hafi í raun klárað alla dagana sína, a.m.k. tiltölulega fáir.
Það var ekki fyrr en menn fóru að skera þetta svo niður að talið var að það yrði að strekkja sóknina svo að menn næðu örugglega öllum dögunum, að farið var að nýta veiðitímann alveg í botn, liggja kannski tvo sólarhringa úti á sjó til þess að nýta veiðitímann sem allra mest, spara sér ferðirnar í land og með tiltölulega mjög hlaðna báta og mikinn afla í hverri ferð. Ég held að útfærslan á sóknarkerfinu hefði verið mun betri, skynsamlegri og í alla staði eðlilegri ef dagarnir hefðu verið fleiri og menn verið frjálsari í þessum veiðum.