Landmælingar og kortagerð

Þriðjudaginn 17. október 2000, kl. 14:34:30 (633)

2000-10-17 14:34:30# 126. lþ. 11.6 fundur 75. mál: #A landmælingar og kortagerð# (stjórn og verkefni Landmælinga Íslands) frv., SÓ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 11. fundur, 126. lþ.

[14:34]

Stefanía Óskarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Það vill svo til að mér er ágætlega vel kunnugt um starfsemi Landmælinga Íslands. Þar er á ferðinni starf sem er mikils virði og í þessu frv. er verið að leggja traustari grunn að þeirri starfsemi.

Hins vegar hefur hv. þm. Guðmundur Árni Stefánsson ekki svarað þeirri spurningu hvernig þessar breytingar sem hér eru fyrirætlaðar séu ógn við þingræði á Íslandi.