Flm. (Þuríður Backman):
Herra forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þál. um að smásala á tóbaki verði háð leyfisveitingu. Flutningsmenn með mér á tillögunni eru Sigríður Jóhannesdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Drífa Hjartardóttir og Katrín Fjeldsted.
Tillagan hljóðar svo:
,,Alþingi ályktar að fela heilbrrh. að undirbúa nauðsynlegar lagabreytingar sem gera smásölu á tóbaki háða leyfisveitingu.``
Þáltill. um sama efni hafa verið fluttar á undanförnum þingum en ekki náð fram að ganga og því er hún endurflutt hér enda er góð vísa aldrei of oft kveðin.
Skaðsemi tóbaks er óumdeild og þrátt fyrir að þó nokkuð hafi dregið úr tóbaksnotkun á undanförnum áratugum, ekki síst vegna mikils og markviss áróðurs, eru reykingar engu síður algengar eins og fram hefur komið í fjölda kannana. Kannanir hafa einnig sýnt að dregið hefur úr reykingum barna og unglinga síðustu tvö árin. Þannig má nefna að hlutfall þeirra sem einhvern tíma hafa reykt lækkar úr 59% árið 1998 í 52% árið 2000 og hlutfall þeirra sem reykja daglega lækkar úr 24% árið 1998 í 16% nú í ár.
Þessum árangri verður að fylgja eftir með þeim aðferðum sem talið er gagnist best í tóbaksvörnum, svo sem aðgengi að tóbaki. Það er að heyra að tillaga eða hugmyndir í þessa átt hafi náð eyrum fleiri eftir því sem tíminn hefur liðið og því trúi ég að þessi þáltill. fái góðar undirtektir og afgreiðslu í þinginu.
Áður hefur komið fram að samkvæmt upplýsingum tóbaksvarnanefndar úr könnunum, sem gerðar hafa verið, má ætla að unglingar hafi varið 110 millj. kr. til tóbakskaupa árið 1999. Þetta er upphæð sem unglingar undir 18 ára aldri hafa varið til tóbakskaupa, unglingar sem hafa ekki leyfi til að kaupa tóbak samkvæmt lögum.
Af þessum 110 millj. kr. má ætla að nemendur í 8. bekk, 13 ára, hafi keypt sígarettur fyrir rúmlega 12 millj. kr. En það hefur líka margoft komið fram í rannsóknum að því yngri sem einstaklingur er þegar hann byrjar að reykja, þeim mun líklegra er einnig að hann hljóti af alvarlegan heilsufarslegan skaða. Yfir 80% allra reykingamanna byrja að reykja áður en þeir ná 18 ára aldri. Því yngri sem unglingurinn er því líklegra er að hann verði háður tóbaki og því líklegra er að skaðinn verði meiri.
Þá er þess einnig að geta að talin er sterk fylgni milli tóbaksreykinga ungmenna og hættu á að þeir leiðist út í neyslu annarra og enn hættulegri vímuefna. Því hefur verið haldið fram að takist að koma í veg fyrir að unglingar reyki eða neyti áfengis eru nánast engar líkur til að þeir ánetjist sterkari fíkniefnum. Samkvæmt ársskýrslu SÁÁ reykja yfir 95% þeirra sem leita sér aðstoðar vegna áfengisvandamála og er næsta fátítt að sá sem verður eiturlyfjum að bráð reyki ekki. Því er ljóst að mikils er um vert að allra leiða sé leitað til að draga úr reykingum almennt og þó sérstaklega reykingum barna og unglinga.
Í upplýsingum frá tóbaksvarnanefnd, sem birtar voru í janúar á þessu ári, kemur fram að u.þ.b. 26,6% Íslendinga á aldrinum 18--69 ára reyktu daglega árið 1999 en það er um fjórðungur Íslendinga á þessum aldri. Kannanir á þessu ári hafa sýnt lægri tölur og má leiða líkur að því að sú verði niðurstaðan eftir árið. Notkun vindlinga er langalgengust eins og áður eða 74,6% í hópi karla sem reykja og 96,6% í hópi kvenna sem reykja.
En af því sem hér hefur verið rakið má ráða að með því að draga úr möguleikum, einkum unglinga, til að nálgast tóbak væri stórt skref stigið í þá átt að draga úr reykingum barna og unglinga. Það hefur líka komið fram að það er í um 70% tilvika sem unglingar undir 18 ára aldri geta keypt sígarettur ef þeir fara og versla, þeir fá vöruna afgreidda. Víða vantar því mikið á að verslanir sem selja tóbak framfylgi lagaákvæðum um bann við sölu þess til þeirra sem eru yngri en 18 ára. Leiða má líkur að því að ef sölustöðum tóbaks fækkaði yrði mikilvægt skref stigið til að draga úr reykingum unglinga. Samhliða leyfisskyldu á smásölu tóbaks þyrfti að auka eftirlit til muna en það er tæplega nokkurt eins og málum er háttað nú.
Ég vil þó geta samstarfsverkefnis Íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkur og tóbaksvarnanefndar og Verslunarmannafélags Reykjavíkur um aukið eftirlit í Reykjavík með smásölu tóbaks og ég vona að þetta átak standi undir þeim væntingum sem gerðar eru.
Í skoðanakönnun sem Hagvangur gerði fyrir tóbaksvarnanefnd árið 1999 kom fram að meiri hluti fólks, eða 56%, er mjög hlynntur eða frekar hlynntur því að fækka sölustöðum tóbaks. Athyglisvert er að sjá að rúmlega 43% þeirra sem reykja daglega eru hlynntir því að sölustöðum verði fækkað.
Mikil þörf er á róttækum úrræðum til að stuðla að því að lagaákvæðum um sölu tóbaks verði framfylgt. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur sett tóbaksvarnir sem eitt af forgangsverkefnum stofnunarinnar og er þar fremst á lista að hefta sölu tóbaks til barna og unglinga.
Því er farin sú leið að leggja til að í lögum um tóbaksvarnir og í heilbrigðisreglugerð verði sett ákvæði um að til að selja tóbak þurfi sérstakt leyfi. Lagt er til að leyfi til tóbakssölu verði tímabundið, t.d. til þriggja ára í senn, en skilgreind ákveðin viðurlög ef um brot á reglunum er að ræða. Þá sé einnig skýrt að leyfi til tóbakssölu verði ekki endurnýjað ef sannað er að brotið hafi verið verulega eða ítrekað gegn lagaákvæðum um sölu tóbaks.
Herra forseti. Nú hefur komið fram að hæstv. heilbr.- og trmrh. mun í vetur leggja fram frv. um endurskoðun laga um tóbaksvarnir. Hugsanlegt er að þar verði ákvæði eittvað svipað því sem er í þessari þáltill. Gott væri ef svo yrði. Ég hef flutt þáltill. sama efnis áður og er sannfærð um að þetta sé sú leið sem fara þarf. Ég vil nefna það að umsagnir tóbaksvarnanefndar varðandi fyrri þáltill. voru mjög jákvæðar og þar var tekið undir tillögurnar.
Helstu úrræðin í baráttunni gegn neyslu á tóbaki eru mjög öflugt áróðurstarf gegn tóbaksnotkun og markviss vinna að því að draga úr reykingum og koma í veg fyrir að börn og unglingar byrji að nota tóbak. Einnig þarf að hækka tóbaksverðið verulega og smásalan þarf að vera háð leyfisveitingu. Taka þarf upp strangt eftirlit með smásölum eins og hér er lagt til. Tóbak þarf að taka út úr vísitölunni svo að hægt sé að hækka verðið og lög um tóbaksvarnir verður að endurskoða til að stemma stigu við tóbaksnotkun og vernda fólk enn frekar fyrir áhrifum tóbaksreyks. Við væntum nýs frv. nú í vetur þar að lútandi.