Bryndís Hlöðversdóttir:
Herra forseti. Það var fróðlegt að heyra loksins rökstuðning hæstv. dómsmrh. fyrir þessari ákvörðun sem mörgum blöskraði. Í þeim rökstuðningi kom fram, að því er mér þykir, ofuráhersla á háar einkunnir á lagaprófi sem tekið var fyrir einhverjum áratugum síðan og mikil áhersla á reynslu í stjórnsýslu en minni áhersla á þekkingu á sviði dómarastarfa. Þannig lítur þessi ákvörðun út í augum almennings, herra forseti.
Herra forseti. Ég vildi einnig gera að umtalsefni þann rökstuðning hæstv. ráðherra að ekki hafi verið sett í auglýsingu hvatning til kvenna um að sækja um vegna þess að hér væri um að ræða svo virðulegt embætti. Ég held að einmitt þegar kemur að hinum virðulegri embættum þá þurfi sérstaklega að hvetja konur til að sækja um. Þær þurfa þá jafnframt að fá hvatningu þegar þær sækja um og í þessu tilviki erum við að tala um hæfa einstaklinga. Allir þessir einstaklingar eru mjög hæfir og engin ástæða til að ætla að þessar konur hafi ekki verið jafnhæfar og sá karl sem var ráðinn. Við megum ekki taka þessu þannig að vanhæfar konur séu hvattar til að sækja um störf í stað hæfra karla.