Jóhann Ársælsson (andsvar):
Hæstv. forseti. Það eru engin úrræði í þeim tillögum sem liggja núna fyrir hvað það varðar að sanna þessi mál betur en hægt hefur verið fram að þessu. Eingöngu er gert ráð fyrir því að eftirlitsmenn geti farið um borð og menn geti gert það á þeim forsendum að aflasamsetning hafi verið eitthvað undarleg. Ég tel reyndar að Fiskistofa hafi haft möguleika til að gera þetta eins og lögin voru fyrir, en út af fyrir sig er ekkert nema gott um það að segja að gera það skýrara og klárara. En það að menn munu sanna einhver brot á útgerðarmenn með því að hafa menn um borð til þess að fylgjast með mun auðvitað ekki ganga, því að það er varla þannig að menn treysti sér til að fara að henda í sjóinn undir augum eftirlitsmannanna og þeir geti kært á þeim forsendum. Yrðu þeir þá ekki að vera tveir svipað og þegar lögreglan er að taka menn fyrir of hraðan akstur, þá þarf að hafa tvo lögregluþjóna til þess að sanna það? Þetta er auðvitað óraunhæf umræða. Ég geri ráð fyrir því að áhrifin eigi að vera fólgin í því aðhaldi sem er í því að fá menn um borð, hafa þá um borð í viku og þurfa síðan að borga áttunda daginn ef þeir skyldu endast svo lengi um borð hjá manni. (Gripið fram í: ... pappírslöggur.) Ekki mundi ég telja að meira gagn yrði að því að taka mynd af hæstv. sjútvrh. og hafa hana um borð heldur en lögregluþjónunum sem voru settir við Reykjanesbrautina, en það mætti reyna það.