Kynbundinn munur í upplýsingatækni

Fimmtudaginn 19. október 2000, kl. 17:51:38 (865)

2000-10-19 17:51:38# 126. lþ. 14.16 fundur 123. mál: #A kynbundinn munur í upplýsingatækni# þál., Flm. HólmS (flutningsræða)
[prenta uppsett í dálka] 14. fundur, 126. lþ.

[17:51]

Flm. (Hólmfríður Sveinsdóttir):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir till. til þál. um aðgerðir til að draga úr kynbundnum mun í upplýsingatækni.

Tillagan er svohljóðandi:

,,Alþingi ályktar að fela menntamálaráðherra að skipa vinnuhóp sem geri tillögur um hvernig auka megi áhuga og þekkingu stúlkna á upplýsingatækni. Hópurinn hafi eftirfarandi hlutverk:

a. að safna fyrirliggjandi upplýsingum um kynbundinn mun á tölvunotkun íslenskra leik- og grunnskólanemenda,

b. að gera ítarlega könnun á orsökum minni áhuga stúlkna en drengja á upplýsingatækni og tölvum almennt,

c. að gera tillögur um aðgerðir sem hvetja stúlkur til að nýta upplýsingatækni, einkum tillögur að námsefni.

Vinnuhópurinn skili tillögum sínum fyrir árslok 2001.``

Herra forseti. Upplýsingatækni og þekkingariðnaður eru þær greinar atvinnulífsins sem hraðast vaxa um þessar mundir um heim allan. Er oft talað um hið nýja hagkerfi í þessu samhengi. Upplýsingasamfélagið er í örri mótun og framvinda ræðst ekki aðeins af lagasetningu og ákvörðun stjórnvalda heldur ráða þar miklu hinir ýmsu hönnuðir, forritarar og stjórnendur í þekkingariðnaði. Þessum störfum sinna í langflestum tilfellum karlmenn. Þó er hverjum manni ljóst að mikilvægt er að sjónarmið beggja kynja hafi áhrif á þetta mótunarstarf og þessa uppbyggingu.

Hér á landi hefur þróunin verið afar hröð og í dag er mikill skortur á starfsfólki með þekkingu og menntun á þessu sviði. Mikið fjármagn streymir inn í þessar nýju atvinnugreinar og laun í þessum geira eru með því hæsta sem þekkist hér á landi. Þessi þróun er því afar jákvæð og mikið fagnaðarefni að vel launuð störf sem krefjast menntunar hafi orðið til. Það hlýtur að vera eitt af meginmarkmiðum stjórnvalda að greiða götu þeirra atvinnugreina sem krefjast menntunar og skapa hálaunastörf.

Herra forseti. Það er verulegt áhyggjuefni að konur eru aðeins lítill hluti þeirra sem vinna við þessar nýju atvinnugreinar. Í erindi Guðbjargar Sigurðardóttur, formanns verkefnastjórnar um upplýsingasamfélagið, sem hún flutti um konur og upplýsingasamfélagið í apríl sl. kom fram að við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að hlutfall kvenna í þessum störfum er í besta falli 20%. Því miður er ekkert sem bendir til þess að það sé að breytast. Það á jafnt við hérlendis sem erlendis. Þetta þýðir einfaldlega að mjög fáar konur eru í þessum hálaunastörfum. Ekki er síður alvarlegt að samkvæmt þessu taka konur ekki virkan þátt í að móta þær afurðir og það umhverfi sem þessar atvinnugreinar skapa. Tölvur, og þá sérstaklega netið, skapa æ ríkari sess í lífi karla og kvenna. Það er staðreynd að kynin eru ólík og því er mikilvægt að sjónarmið, gildi og viðhorf beggja kynja komi að mótun þessarar nýju tækni.

Herra forseti. Við Íslendingar erum í fararbroddi hvað varðar tölvueign og tölvunotkun. Rannsóknir benda til þess að tölvuaðgangur kynjanna er nokkuð jafn en af einhverjum óþekktum ástæðum hafa piltar verið mun duglegri við að tileinka sér þessa nýju tækni. Það staðfestir kynjahlutfallið á þessu sviði og þá er sama hvort litið er til vinnumarkaðarins eða á námsval. Þannig er hlutfall kvenna í tölvunarfræði á háskólastigi hér á landi aðeins um fimmtungur og virðist því miður ekki vera að aukast.

Með leyfi forseta nefni ég hér nokkur sláandi dæmi sem staðfesta kynbundinn mun í upplýsingatækni. Upplýsingarnar eru fengnar af heimasíðu forsrn. um konur og upplýsingasamfélagið.

Í Skýrslutæknifélagi Íslands, sem er fagfélag þeirra sem starfa við eða hafa áhuga á upplýsingatækni, eru fullgildir félagar alls 771, þar af er 141 kona, eða 18,29%.

Í Félagi tölvunarfræðinga eru 426 félagar, 81 kona, eða 19%.

Frá upphafi, eða frá árinu 1978, hefur Háskóli Íslands brautskráð alls 427 nemendur með BS-próf í tölvunarfræði. Þar af eru 79 konur, 18,5%.

Í Háskólann í Reykjavík innrituðust haustið 1999 150 nemendur í tölvunarfræðideild og var skiptingin 72% karla á móti 28% kvenna.

Í Nýja tölvu- og viðskiptaskólanum sem síðasta vetur bauð upp á átta bekki í heilsársnámi í forritun og kerfisfræði, voru alls 102 nemendur, þar af 8 konur.

Svona mætti því miður lengi áfram telja.

Herra forseti. Vissulega ber að nefna það sem vel er gert. Ég vil því að hér komi fram að sett hefur verið af stað átaksverkefni til tveggja ára á vegum jafnréttisnefndar Háskóla Íslands og Jafnréttisráðs Íslands. Verkefnið hefur það markmið að auka hlut kvenna í forustustörfum og stuðla að jafnari kynskiptingu í raun- og tæknigreinum. Er það vel. Ég tel þó enn mikilvægara að grípa fyrr inn í þetta ferli og leita orsaka þess að stúlkur sækja sér síður en piltar menntun í þessum greinum.

Herra forseti. Það er mikilvægt að gera sér grein fyrir því að mótun lífsviðhorfa og starfsval hefst strax á barnsaldri. Því er nauðsynlegt að bregðast við þá þegar. Í þessu samhengi er eðlilegt að horft sé til menntakerfisins og þeirra möguleika sem það býður upp á. Ég minni á að í aðalnámskrá grunnskóla er kveðið á um að íslenskum skólum er skylt að vinna að því að tryggja jafnan rétt drengja og stúlkna og búa bæði kynin undir virka þátttöku í atvinnulífi og mótun samfélagsins. Ekki er síst talið brýnt að skólar reyni að stuðla að auknu jafnrétti í tölvu- og uppýsingatækni.

Þessi þáltill., herra forseti, sem hér er borin fram, styður mjög vel við þessa stefnu menntmrh. Piltar virðast einhverra hluta vegna ekki þurfa jafnmikla hvatningu og stúlkur þegar upplýsingatæknin er annars vegar. Innlendar og erlendar rannsóknir staðfesta að verulegur munur er á því hvernig stúlkur og piltar nota upplýsingatækni. Hér á landi hefur Sólveig Jakobsdóttir hjá Kennaraháskóla Íslands verið í fararbroddi á þessu sviði og hafa rannsóknir hennar sýnt að stúlkur nota tölvur helst til rit- og gagnavinnslu en piltar vinna með tölvugrafík, vefnað, forritun og þess háttar.

Mismunandi kynni stúlkna og pilta af tölvum og mismunandi viðhorf þeirra til upplýsingatækni birtast í náms- og starfsvali. Vafalítið er hér um samspil margra og flókinna þátta að ræða og sjálfsagt er ekki til nein ein allsherjarlausn á vandanum. Því er mjög mikilvægt að kanna ítarlega orsakir þess að stúlkur sýna upplýsingatækni minni áhuga en piltar, áður en brugðist verður við.

[18:00]

Erlendar rannsóknir sýna að færni stúlkna á þessu sviði er alls ekki minni en pilta og standa þær þeim jafnvel framar ef þær gefa sig að tölvum. Vandinn er hins vegar sá að stúlkur sýna tölvum einfaldlega minni áhuga en strákar. Mikilvægt er að gera sér grein fyrir að hve miklu leyti þessi munur skapast vegna þess efnis sem boðið er upp á í tölvum og á netinu. Piltar eyða miklum tíma í tölvuleikjum og fikra sig síðan yfir í annað, svo sem netið. Stúlkur sýna tölvuleikjum almennt minni áhuga þó ekki sé vitað hvort það er vegna lítils áhuga á leikjum eða á þeim tegundum leikja sem helst er boðið upp á.

Í erlendum rannsóknum er því haldið fram að tölvur og tækni höfði einfaldlega ekki til stúlkna vegna þess að þar ríki ,,karllæg viðhorf``. Lítið tillit sé tekið til þarfa stúlkna, enda vita markaðsmenn tölvufyrirtækja að markhópur þeirra er fremur drengir en stúlkur. Þannig hefur myndast ákveðinn vítahringur sem erfitt er að losna út úr án þess að gera sér vel grein fyrir orsökum og afleiðingum í þessu samhengi. Markmiðið hlýtur því að vera að skapa aðstæður þar sem tölvur og tækni vekja áhuga stúlkna og skapa þeim forsendur til að hasla sér völl á þessu sviði. Langtímamarkmiðið er svo að jafna hlut kynja í hópi þeirra sem móta þessa tækni og skapa til langframa þær aðstæður að tölvur og tækni uppfylli þarfir beggja kynja og allra aldurshópa.

Herra forseti. Eins og áður er getið er mikilvægt að greina orsakir þessa mismunar og byggja aðgerðir á þeirri þekkingu sem út úr þeirri vinnu kemur. Í ljósi þess að kynjamunur á þessu sviði er svipaður um heim allan er ekki ólíklegt að hér spili inn í þættir eins og félagsmótun, áhugi og hvatning, auk ýmissa þátta sem móta einstaklinginn allt frá fæðingu.

Það sem best gagnast til þess að vinna með þessa þætti er menntakerfið. Þar gefst færi á að ná til allra barna og gefa þeim tækifæri til að kynnast veröld tölvunnar og netsins. Námið og námsefnið verður að miða að því að vekja áhuga á tölvutækninni út frá forsendum hvers og eins. Í ljósi þess að stúlkur sækja síður í upplýsingatækni er mikilvægt að leggja sérstaka áherslu á að vekja áhuga þeirra út frá þeirra eigin forsendum. Fyrsta skrefið er að viðurkenna að þessi munur er fyrir hendi. Síðan þarf að finna leiðir til að minnka þennan mun. Ef ekkert breytist mun tölvuheimurinn áfram vera mótaður af körlum fyrir karla. Ef vilji er til að breyta þessu þá þarf að byrja snemma á mótunarskeiði einstaklingsins.

Herra forseti. Tölvur og netið fela í sér ákveðinn lífsstíl og hugsunarhátt. Tölvukunnátta opnar fólki möguleika til að nýta sér tækifæri framtíðarinnar í hinu nýja hagkerfi. Í hinu nýja hagkerfi er gott tölvulæsi algjört grundvallaratriði til þess að einstaklingar séu gjaldgengir á vinnumarkaði. Ef stór hópur kvenna nær ekki tökum á tölvutækninni, skapar það nýjan og aukinn ójöfnuð kynjanna á vinnumarkaði. Þessi þekking á erindi við bæði kynin og alla aldurshópa, enda er markmið tölvunnar og netsins að gera líf okkar þægilegra. Því er mikilvægt að berjast gegn því að viðhorf og gildi annars kynsins ráði ríkjum í þróun og uppbyggingu hins nýja hagkerfis.