Gengisþróun íslensku krónunnar

Mánudaginn 30. október 2000, kl. 15:22:24 (906)

2000-10-30 15:22:24# 126. lþ. 15.1 fundur 63#B gengisþróun íslensku krónunnar# (óundirbúin fsp.), fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 126. lþ.

[15:22]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Að okkar dómi er engin sérstök ástæða til þess um þessar mundir að grípa til sérstakra ráðstafana vegna þeirrar þróunar sem orðið hefur á gengi krónunnar að undanförnu. En að sjálfsögðu getur engin ríkisstjórn, hvorki þessi né önnur, útilokað sérstakar aðgerðir af slíku tilefni síðar meir en tilefnið er ekki fyrir hendi í dag að mínum dómi.