Svör við fyrirspurnum

Mánudaginn 30. október 2000, kl. 16:03:58 (937)

2000-10-30 16:03:58# 126. lþ. 15.91 fundur 68#B svör við fyrirspurnum# (aths. um störf þingsins), Forseti GÁS
[prenta uppsett í dálka] 15. fundur, 126. lþ.

[16:03]

Forseti (Guðmundur Árni Stefánsson):

Nú er sá tími á enda runninn sem ætlaður er fyrir umræður um störf þingsins. Forseti áréttar að samkvæmt 49. gr. þingskapa verður margnefndri fyrirspurn svarað innan tilskilins frests það sem um getur. Forseti á ekki annan kost en að ljúka umræðunni en ef hæstv. ráðherra vill ræða fundarstjórn forseta er það heimilt. Svo virðist ekki vera.