Flm. (Ásta R. Jóhannesdóttir):
Herra forseti. Ég ætla að ljúka umræðunni með því að þakka fyrir stuðning við það mál sem komið hefur fram hjá nánast öllum sem til máls hafa tekið.
Ég fagna því að hæstv. ráðherra skuli lýsa því yfir, sem hún hefur reyndar gert áður, að þetta sé mannréttindamál og það held ég að við séum öll sammála um. Mér finnst ekki ástæða til að kýta um það hver beri ábyrgðina á hverju í þessu kerfi öllu saman. Það eru ýmsir fyrirrennarar okkar sem okkur ber að þakka fyrir að komið var á þessu almannatryggingakerfi. Okkur ber að hlúa að því og okkur ber að gæta að því að það verði ekki eyðilagt og okkur ber að sníða af því vankanta sem eru fyrir. Til þess er auðvitað þetta frv. lagt fram að það er lagt til að sníða af því þann agnúa að tekjutengja við laun maka tekjutryggingu þeirra sem geta ekki lengur séð sér farborða með því að vinna fyrir sér.
Vegna samanburðar við Danmörku í andsvari hæstv. ráðherra verð ég árétta hvaða tölur við erum hér að tala um. Hæstv. ráðherra talaði um að tekjutenging hefjist í Danmörku þegar tekjur hafa náð einni milljón ísl. kr. (Gripið fram í.) Já, það væru um 50 þús. kr. á mánuði á Íslandi. Hins vegar er hægt að skerða tekjur lífeyrisþega niður í 17 þús. kr. á Íslandi þannig að við verðum nú að athuga hvað við erum að tala um. Það er eins og að bera saman appelsínur og epli að fjalla þannig um málið.
Ég hef upplýsingar úr heilbrrn. um þessar tekjutengingar og þekkti mjög vel til málsins meðan ég var hjá Tryggingastofnun enda sinnti ég þar Norðurlandasamstarfi og þá var engin slík tekjutenging. Hér stendur að ,,pensiontillægget``, sem er náttúrlega uppbót, byrji að skerðast í þessa veru vegna maka en það er bara allt annar handleggur. Þar fyrir utan tel ég að við Íslendingar eigum að sýna þessu fólki þann sóma að greiða þeim persónulífeyri sem svarar til tekjutryggingar og grunnlífeyri án þess að það tengist tekjum maka. Við eigum að leyfa þessu fólki að halda reisn sinni, þeim sem lenda í þeim hremmingum að missa heilsuna og geta ekki unnið. Þeir gera það ekki þegar tekjur maka skerða tekjur þeirra eins og gerist með þessari reglu.
Vissulega er virðingarvert að hæstv. ráðherra hefur stigið tvö skref í átt að því minnka þessa tekjutengingu. En hæstv. ráðherra hefur einnig talað um að afnema þessa tekjutengingu. (Gripið fram í: Hvar?) Samstarfsflokkur hæstv. ráðherra hefur ályktað í þá veru á landsfundi sínum að afnema beri allar tekjutengingar. Við erum ekki að fara fram á það hér. Samstarfsflokkur hæstv. ráðherra er tilbúinn til að setja í það mikla peninga, eins og hér kom fram í umræðunni, að afnema allar tekjutengingar. Það væri strax í áttina ef hæstv. ráðherra kæmist að samkomulagi við samstarfsflokkinn, sem er svo stórhuga í málefnum lífeyrisþega þó að það komi ekki fram hér í þinginu, um að fá fjármagn til að afnema þessa óréttlátu tengingu. Ég vonast til þess að hæstv. ráðherra verði ágengt í þeim efnum og svo sannarlega munum við styðja hæstv. ráðherra í því máli þegar það kemur hér inn í þingið, að afnema þessa tengingu við tekjur maka.
Auk þess þarf auðvitað að taka á ýmsum fleiri málum í almannatryggingunum. Það þarf að einfalda kerfið og leiðrétta kjör lífeyrisþega, þeirra sem verst eru settir, eins og við höfum margoft talað um hér í dag. Það þarf að gera þetta einfalt, það þarf að leiðrétta kjör þessa fólks sem dregist hefur aftur úr. En fyrst og fremst þarf að afnema þessa óréttlátu tekjutengingu eins og við leggjum til hér, þ.e. afnema tekjutengingu tekjutryggingar við laun maka lífeyrisþega.