Félagsmálaráðherra (Páll Pétursson):
Herra forseti. Ég held einmitt að okkur hafi tekist afar vel með móttöku þessara flóttamannahópa. Að þeir eru frá Júgóslavíu eða ríkjum fyrrverandi Júgóslavíu er vegna þess að Alþjóðaflóttamannastofnunin mat það svo að þeir væru í nauðum staddir og þeir væru best komnir hér. Við höfðum engin áhrif á það, það var mat Alþjóðaflóttamannastofnunarinnar að þessum einstaklingum yrði boðið hingað. Þeir eru yfirleitt af blönduðum hjónaböndum, þ.e. þetta fólk, sem bjó í Kraina-héraði, var hrakið þaðan út og vegna þess að annar makinn var Serbi og hinn Króati. Þetta fólk var hvergi boðið velkomið og bjó við hinar ömurlegustu aðstæður í Serbíu.
Hvað eftirfylgnina varðar þá sjáum við um þetta fólk í eitt ár, síðan bjargar það sér sjálft. Sem betur fer hefur það gert það. Mér er kunnugt um eina fjölskyldu sem hefur lent í fjárhagsvandræðum af þessum hópi. Að öðru leyti veit ég ekki til annars en að þessu fólki vegni vel í íslensku þjóðfélagi. Mikil áhersla hefur verið lögð á að kenna því íslensku og þetta er fólk sem hefur getað bjargað sér og verið duglegt og gott fólk og er fengur að hafa það. Afar vel hefur verið staðið að móttökunni á öllum þeim stöðum þar sem þessir hópar hafa verið settir niður.
Ég held að ekki hefði verið farsælt eða gæfulegt eða borið mikinn árangur að senda fólk og peninga til Serbíu undir stjórn Milosevic til að hjálpa þessu fólki.