Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Hér hefur komið fram hjá bæði hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur og hv. þm. Kolbrúnu Halldórsdóttur að við séum að standa okkur eitthvað illa og menn eru daprir yfir þessu. Þetta er alveg fráleitur málflutningur. Ísland hefur ekki staðið sig illa. Ísland hefur staðið sig, má segja, best af þjóðum heims vegna þess að við erum að nýta endurnýjanlega orkugjafa. Ísland er heimsmeistari í að nýta endurnýtanlega orkugjafa. Engin önnur þjóð nýtir endurnýjanlega orkugjafa betur heldur en Ísland, ekki svo að ég viti til. Noregur er á eftir okkur í því, Evrópusambandið langt á eftir okkur. Þeir eru að nota kol, olíu og kjarnorku. Við erum ekki að nota kjarnorku. Við erum að nota frekar lítið af olíu og kolum en við erum að nota endurnýjanlega orkugjafa. 67% af okkar orku er endurnýjanleg. Aðrar þjóðir standa okkur langt að baki.
Evrópusambandið stefnir að því að ná fram 12% endurnýjanlegra orkugjafa árið 2020, 12%. Við erum með 67% núna. Hver er að segja að við stöndum okkur illa? Þetta er fráleitur málflutningur. Það er einmitt vegna þess hvað við höfum staðið okkur vel sem við viljum ekki taka á okkur þær skuldbindingar að geta ekki notað okkar orku, eins og mér heyrist að hv. þm. séu að tala um, þannig að þetta er fráleitur málflutningur.
Varðandi það hvort þessi mál verði frekar rædd hér á þingi og hingað komi inn upplýsingar þá vil ég benda á að það mun verða utandagskrárumræða, að mér skilst, um þetta mál í næstu viku sem vinstri grænir hafa beðið um og mun beinast að hæstv. forsrh. Davíð Oddssyni, þannig að þessi mál verða rædd hér þá aftur.