Pétur Bjarnason:
Herra forseti. Orkubú Vestfjarða var stofnað til að ná forræði yfir orkulindum fjórðungsins íbúum til hagsbóta. Það hefur gengið eftir. Sýnt hefur verið fram á kostnaður við rafhitun íbúðarhúsa hjá Orkubúinu stenst samanburð við aðra.
Erfiðustu árin eru að baki og Vestfirðingar eru farnir að njóta arðsins. Af hverju eru þeir þá að velta fyrir sér sölu á Orkubúinu? Það er fyrst og fremst, herra forseti, nauðungarúrræði til þess að reyna að létta skuldabyrði sem er löngu orðin þeim um megn. Þar við bætist að það dugir ekki einu sinni til. Sveitarfélag eins og Vesturbyggð fær ekki einu sinni nóg til þess að borga vanskil sín, hvað þá lánin.
Hvað kemur í staðinn? Orkuverð mun hækka, störfum mun fækka og þar með fólkinu. Vestfirðingar mega síst við því. Sala Orkubúsins er neikvætt innlegg ríkisstjórnarinnar í húsnæðisklúðrið sem stafar m.a. af fólksflótta og eyðingu landsbyggðar sem nú stendur sem hæst án sýnilegrar viðspyrnu af hálfu stjórnvalda. Finna verður önnur ráð en þessi.