Flutningur hættulegra efna um jarðgöng

Fimmtudaginn 02. nóvember 2000, kl. 14:08:31 (1239)

2000-11-02 14:08:31# 126. lþ. 19.5 fundur 93. mál: #A flutningur eldfimra efna um jarðgöng# þál., ÞKG (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 19. fundur, 126. lþ.

[14:08]

Þorgerður K. Gunnarsdóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Ástu Möller fyrir að hafa bent á þessi umferðaröryggisatriði og þau ásamt fleirum sem hafa komið fram hér í dag munum við eflaust taka til endurskoðunar og íhugunar í þeim starfshópi sem ég er formaður í en það er starfshópur um að endurskoða lög og reglur er tengjast umferðaröryggismálum. Ég þakka þær góðu ábendingar sem hafa komið fram hér í dag.