Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):
Herra forseti. Það er ástæða til þess að vekja athygli á því vegna síðustu orða hv. þm. að hv. þm. Guðmundur Hallvarðsson gerði grein fyrir því hvers vegna hann sat hjá í flugráði við afgreiðslu málsins. Það getur fólk lesið í þingtíðindum. Ég vil vekja athygli á þessu vegna þess að það var verið að reyna að gera það tortryggilegt og láta líta út sem svo að hann væri í einhverri andstöðu við ráðherra í þessu máli sem ekki er.