Endurskoðun á fyrirkomulagi rafmagnsöryggismála

Föstudaginn 03. nóvember 2000, kl. 14:47:56 (1355)

2000-11-03 14:47:56# 126. lþ. 20.13 fundur 13. mál: #A endurskoðun á fyrirkomulagi rafmagnsöryggismála# þál., iðnrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 126. lþ.

[14:47]

Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Já, það fór eins og mig grunaði að væri ekki mikið á bak við það sem hv. þm. sagði hér. ,,Miklar líkur``, ,,talið vera``, sagði hv. þm. Það er nefnilega þannig að ekki hefur verið hægt að rekja þessa bruna til skorts á eftirliti. Ég held að hv. þm. ætti að kynna sér mál áður en hann hefur uppi stóryrði í ræðustól á Alþingi.