Endurskoðun á fyrirkomulagi rafmagnsöryggismála

Föstudaginn 03. nóvember 2000, kl. 16:09:03 (1388)

2000-11-03 16:09:03# 126. lþ. 20.13 fundur 13. mál: #A endurskoðun á fyrirkomulagi rafmagnsöryggismála# þál., Flm. ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 20. fundur, 126. lþ.

[16:09]

Flm. (Ögmundur Jónasson) (andsvar):

Herra forseti. Ég kem fyrst og fremst upp til þess að taka undir þetta. Það er mjög mikilvægt að menn ástundi vönduð vinnubrögð hvort sem það er af hálfu ráðherra eða stjórnarandstöðu eða þingmanna yfirleitt. Það hefur verið gert af okkar hálfu í þessu máli.