Jóhann Ársælsson (um fundarstjórn):
Hæstv. forseti. Mér leikur forvitni á að vita hvaða aðferðum hæstv. forseti og hæstv. forsetar yfirleitt beita við það að fá þingmenn til þess að sitja hér í salnum. Það hefur a.m.k. mistekist alfarið gagnvart Sjálfstfl. í dag. Hann er ekki hér, hann fyrirfinnst ekki við þessa umræðu. Ég tek undir að auðvitað er afskaplega nöturlegt að menn skuli ekki fá að hlusta á sjónarmið hins stjórnarflokksins hvað varðar þessi mál. Á maður kannski að álykta sem svo að þeir séu svo ánægðir með þær niðurstöður sem hér liggja fyrir að þeir telji ekki nokkra ástæðu til þess að vera hér til staðar og láti bara framsóknarmenn sjá um það að draga þessa kerru. (Félmrh.: Að sjálfsögðu.) Að sjálfsögðu, segir hæstv. ráðherra og virðist ánægður með hlutskipti sitt þó hann hljóti að finna fyrir múlnum og svipunni öðru hverju.