Jóhanna Sigurðardóttir:
Herra forseti. Við höfum orðið vör við það í þingsölum að hjá hæstv. forsrh. og ríkisstjórninni ríkir mikið andavaraleysi að því er varðar stöðu efnahagsmála þó hver sérfræðingurinn á fætur öðrum vari við þeirri stöðu og þróun sem efnahagsmálin eru komin í. Hæstv. forsrh. nefnir aðeins lækkun á gengi hlutabréfa en það er fleira á ferðinni sem veldur ugg hjá þessum sérfræðingum, t.d. mikil þensla og útlánaaukning hjá bönkum, vaxandi verðbólga og gífurleg aukning á skuldum fyrirtækja og heimila, og minni framleiðni.
Það er eins og viðhorf ráðherrans komi líka fram hjá pólitískum bankastjórum Seðlabankans en þegar kemur að sérfræðingum bankans og sérfræðingum úti í þjóðfélaginu þá hafi þeir allt aðrar skoðanir á stöðu efnahagsmála en ríkisstjórnin, hæstv. forsrh. og bankastjórar Seðlabankans. Það er auðvitað alvarlegt umhugsunarefni.