Heilbrigðisráðherra (Ingibjörg Pálmadóttir):
Virðulegi forseti. Það er hárrétt sem fram kom hjá hv. 5. þm. Norðurl. v. að ekki eru neinir samningar í gangi varðandi flug á Austurlandi. En aftur á móti erum við búin að bjóða út það flug og reyndar á landinu öllu. Samningar eru annars staðar í gangi en okkur hefur ekki tekist að semja fyrir Austfirðinga.
Á þessum tíma sem engir samningar hafa verið í gangi þurfum við að nýta það sem fyrir hendi er og þar á meðal er t.d. þyrlan sem við höfum þurft að nýta í meiri mæli en áður og það gerum við þar til við erum búin að semja um sjúkraflug á Austurlandi, en það mun gerast líklega innan þriggja vikna. En eins og ég segi, það eru ýmis úrræði í dag sem við verðum að beita og höfum beitt.