Jón Bjarnason:
Herra forseti. Það er alveg ljóst að sveitarfélögum á Vestfjörðum er stillt upp við vegg. Það hefur komið fram að sala á Orkubúinu eða hlutafélagavæðing Orkubúsins sé m.a. skilyrt því að þau sveitarfélög sem skuldi mest, skuldi vegna félagslega íbúðakerfisins, greiði þær skuldir eða andvirði orkubúsins renni upp í þær skuldir. Það er því ljóst að þeim er stillt upp við vegg.
Þessi staða þarna er afar ósanngjörn. Það væri kannski hægt að spyrja hæstv. fjmrh. hvað líði peningunum sem ætlunin var að leggja í varasjóðinn sem átti að koma og taka reyndar á öðrum þætti félagslega íbúðakerfisins. Mér skilst að fjármögnun samkvæmt lögum á öllu þessu kerfi sé hreinlega ekki í samræmi við loforð og væntingar.
Herra forseti. Því er ástæða til þess að tortryggja þær aðgerðir sem hér er verið að leggja upp með og má hugsa sér að annarlegur hugur hvíli að baki, annar en beinn hagur Vestfirðinga.
Herra forseti. Ég leyfi mér því að spyrja: Hyggst félmrh. ganga að íbúum Vestfjarða þvert gegn vilja þeirra og taka af þeim Orkubúið upp í skuldir við gjaldþrota byggðastefnu ríkisstjórnarinnar? Það er verið að gera hér og leggja upp með.
Herra forseti. Í sveitarstjórnarlögum er ákvæði til að taka á fjárhagsvanda sveitarfélaga. Ég leyfi mér að spyrja hæstv. félmrh.: Hvenær hyggst hann beita ákvæðum sveitarstjórnarlaga um að koma sveitarfélögum á Vestfjörðum sem eru mjög illa stödd fjárhagslega til hjálpar? Því eins og stendur í lögunum, herra forseti: ,,Geti sveitarfélag ekki með eðlilegum rekstri staðið straum af lögboðnum útgjöldum eða öðrum skuldbindingum sínum er ráðuneytinu heimilt að veita sveitarfélögunum styrk eða lán úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.``