Vatnsveitur sveitarfélaga

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 17:15:27 (1636)

2000-11-13 17:15:27# 126. lþ. 23.3 fundur 200. mál: #A vatnsveitur sveitarfélaga# (vatnsgjald) frv., JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[17:15]

Jón Bjarnason (andsvar):

Herra forseti. Ég fagna þeim orðum hæstv. félmrh. um að hann ætli ekki að láta hér við sitja. En ég vil líka minna á að hæstv. ráðherra hefur sagt viðlíka líklega síðustu tvö ár og þess vegna bara leyfi ég mér að spyrja: Er einhver von til þess að nú sé meira að marka vilja hæstv. ráðherra, að hann nái fram að ganga þannig að þetta réttlætismál verði í rauninni virt en ekki bara fallegar og góðar meiningar hæstv. ráðherra hér á þingi og svo punktur og basta?