Veiðieftirlitsgjald

Mánudaginn 13. nóvember 2000, kl. 19:57:45 (1685)

2000-11-13 19:57:45# 126. lþ. 23.10 fundur 216. mál: #A veiðieftirlitsgjald# (fjárhæðir) frv., sjútvrh.
[prenta uppsett í dálka] 23. fundur, 126. lþ.

[19:57]

Sjávarútvegsráðherra (Árni M. Mathiesen):

Herra forseti. Til að svara seinustu athugasemd hv. 3. þm. Suðurl. varðandi mismuninn á kostnaðinum vegna eftirlits utan lögsögu og innan lögsögu, þá er gert ráð fyrir að það sé meiri ferðakostnaður vegna eftirlits utan lögsögu þar sem komið getur til að flytja þurfi menn með flugvélum til að komast um borð í skipin þar sem sum þeirra koma ekki til hafnar á Íslandi nema með nokkurra mánaða millibili, eins og t.d. þegar rækjutogarar eru á Flæmska hattinum.