Ófrjósemisaðgerðir 1938-1975

Fimmtudaginn 16. nóvember 2000, kl. 10:35:43 (1828)

2000-11-16 10:35:43# 126. lþ. 26.2 fundur 252. mál: #A ófrjósemisaðgerðir 1938-1975# beiðni um skýrslu frá heilbrrh., ÞSveinb (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 126. lþ.

[10:35]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Sú skýrslubeiðni sem hér er til afgreiðslu var samþykkt á 125. löggjafarþingi en óafgreidd. Skýrslubeiðendum er ljóst að gagnasöfnun um svo viðkvæmt mál er vandasamt og tímafrekt verk og allt kapp er lagt á að faglega sé að verki staðið. Þess er vænst að skýrslan megi líta dagsins ljós næsta haust eða haustið 2001.

Ég kem hér upp til að skýra þetta og leggja áherslu á það að efnið er með þeim hætti að bíða þarf enn um sinn eftir skýrslunni.