Dómsmálaráðherra (Sólveig Pétursdóttir):
Herra forseti. Ég furða mig á þeirri umræðu sem hér hefur átt sér stað. Svo gæti virst sem sumir hv. þm. vilji rýra traust almennings til lögreglunnar þó því sé erfitt að trúa. Fíkniefnavandinn snertir okkur öll og ég tel afar mikilvægt að gæta hagsmuna almennings í þessu máli. (Gripið fram í.) Ég hef þegar skýrt frá tillögu minni um verulegt fjármagn til þessa málaflokks og verður hún rædd í ríkisstjórninni á næstunni og ég á von á því að hún fái þar góðar undirtektir.
Ég var að vona að hv. þm. stjórnarandstöðunnar gætu einu sinni glaðst yfir markmiðum ríkisstjórnarinnar. En því miður var það ekki svo miðað við (Gripið fram í.) ummæli hér áðan. Og fyrirspyrjandi, (Gripið fram í.) hv. þm. Margrét Frímannsdóttir, spurði í þessari umræðu um fjárhagsvanda fíkniefnalögreglunnar og hún fékk svör. Hún er búin að fá ítarleg svör við öllum sínum spurningum. Þeim hefur öllum verið svarað. Það hefur verið rætt ítarlega um gæsluvarðhald og það mál tekið til sérstakrar skoðunar í tengslum við endurskoðun laga um meðferð opinberra mála sem nú stendur yfir hjá réttarfarsnefnd dómsmrn. Bent hefur verið á fjölda yfirvinnutíma hjá fíkniefnadeildinni. Þær tölur sýna svart á hvítu að ekkert yfirvinnubann hefur verið sett. Þvert á móti er mikil yfirvinna unnin í deildinni.
Einnig hefur verið upplýst í þessari umræðu um allt það mikla magn fíkniefna sem lögreglan hefur gert upptækt og það er ástæða til að ítreka það hrós sem lögreglan á skilið fyrir góða frammistöðu.
Hæstiréttur hefur staðfest í nýuppkveðnum úrskurði að fullkomlega eðlilega hafi verið staðið að rannsókn þeirra stóru fíkniefnamála sem nú eru til meðferðar hjá lögreglu. Því hefur verið hafnað að gæsluvarðhaldið standist ekki, enda miklir hagsmunir í húfi í þessu stóra máli sem um ræðir.
Í þessu sambandi finnst mér enn fremur rétt að geta þess, herra forseti, vegna þess að vitnað hefur verið til viðtals við hæstaréttarlögmann hér í bæ í dagblaðinu Degi, að mér barst í morgun afrit af bréfi lögmannsins til ritstjórnar blaðsins þar sem hann telur óhjákvæmilegt að gera verulegar athugasemdir við villandi framsetningu blaðsins á viðtalinu og ummælum um störf dómsmrh. Við eigum að taka höndum saman í þessu máli, í baráttunni gegn fíkniefnavandanum. Ég geri það að mínum lokaorðum hér.