Innflutningur dýra

Fimmtudaginn 16. nóvember 2000, kl. 16:14:11 (1898)

2000-11-16 16:14:11# 126. lþ. 26.5 fundur 154. mál: #A innflutningur dýra# (rekstur sóttvarna- og einangrunarstöðva) frv., DrH (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 26. fundur, 126. lþ.

[16:14]

Drífa Hjartardóttir (andsvar):

Herra forseti. Ég kem upp út af orðum hv. þm. vegna innflutnings á fósturvísum í hesta og því sem kom fram í málflutningi hans, að aðeins hálft prósent hesta á Íslandi væru litföróttir. Þá vildi ég spyrja hann hvort þessir hestar væru til annars staðar í heiminum og um hvað hann er að hugsa í þessum efnum. Ég vil vara við því að farið verði að flytja inn fósturvísa í hesta.